laugardagur, desember 25, 2004

Hef ákveðið að færa bloggið mitt inná blog.central, það er linkur hér til hliðar...
Hilsen Írisin

mánudagur, desember 20, 2004

Helgin, ágæt bara.
Fór í jólahlaðborð í Viðey á föstudaginn, tók mig bara svona 3 tíma að gera mig klára, þar sem ég er 50% í öllu sem ég geri. Fór svo með Elísu, Marko og Boobie í bæinn á laugardaginn. Að þessu sinni var það ekki ég sem stakk af útí nóttina, heldur þau.
Ég var nýbúin að vera svo rausnarleg að splæsa á liðið bjór er við vorum stödd á ellefunni, þá fannst þeim vera rétti tíminn til þess að fara. Og ég sat eftir með þrjá fulla bjóra, ekkert slæmt svo sem, leit bara út eins og ég hefði verið að splæsa bjór á ósýnilegu vini mína.
Jæja, tók mig til og fór á Þjóðleikhúskjallarann, til að hitta súfistaliðið sem var í jólahlaðborði. Þar voru menn heldur í svartari kantinum, e-a hluta vegna kom upp umræða um klámmyndasleik og varð að vera sýnikennsla á honum.

Þar sem ég var með umbúðir um hendina fékk ég iðulega þessa spurningu:,,Jiii, hvað kom fyrir?" fyrst gerði ég heiðarlega tilraun til að útskýra, hvað í fjandanum væri að gerast þarna. Það var e-ð svo erfitt að útskýra það og skilja að ég var komin inná:,,Þú hefðir átt að sjá hina gelluna", þegar leið á kvöldið var ég komin í:,,Ég mætti Vigni og STÚTAÐI honum". Þá tóku allir svona stuttan hlátur og svo:,,nei í alvörunni, hvað kom fyrir?" Margir spurðu samt hvort ég hefði dottið í hálku eða:,,hmmm...rúnkmeiðsli?"

Fór í Smáralind í gær með móður minni, það var einstaklega erfitt, henni fannst MJÖG gaman á meðan ég var við það að kafna úr jah... ógeði, þangað til ég fann opna Hvar er Valli? bók í Hagkaupum. Þá var virkilega gaman í Smáralind, sé eftir að hafa ekki keypt hana ég var nefninlega bara búin með þrjár opnur þegar móðir mín kallaði á mig. Hún var hræódýr 690 kall, já, ætli ég geri mér ekki bara ferð í Kópavoginn eftir henni. Ég má/get ekki spilað á bassann, þannig að Valli gæti fyllt aðeins uppí aðgerðarleysið.

Svo sat Gitta Haukdal greyið í Hagkaupum og var að árita plötuna sína, ég held það þurfi sterk bein til að vera hún.

Íris, fine and dandy.

föstudagur, desember 17, 2004

Hey there.. ég er handlama þessa dagana svo það er erfitt að blogga. Merkilegt hvað maður er ósjálfbjarga, en þetta kemur samt allt með kalda, mana ykkur til að reyna að reima skóna með "Einari", taka utan af mandarínu eða mála sig. Það þarf þolinmæði og vott af keppnisskapi, eða fullt af læknadópi til að geta það.
Nú er ég að fara í jólahlaðborð í kvöld og ég get ekki ákveðið hvort ég eigi að dópa mig upp af parkodin forte eða drekka sársaukann í burtu... any ideas?

Íris uno

þriðjudagur, desember 14, 2004

Það er tvennt sem ég hef verið að pæla í þessa dagana. Annars vegar fólkið sem tínir dósir í miðborginni og hins vegar að ég flytji útá land svo ég geti sokkið enn dýpra í drykkju og þunglyndi með pott þétta afsökun;,,Já en ég er alein hérna, í burtu frá öllu og öllum".Púkinn á öxlinni:,,Þetta er rétt hjá þér Íris, skelltu þér á sveitapöbbinn".

R.S

laugardagur, desember 11, 2004

þar sem hugur minn er blanco þessa stundina, fær Jack Handy að njóta sín.

Before you criticize someone, you should walk a mile in their shoes. That way, when you criticize them, you're a mile away and you have their shoes.

I wish I would have a real tragic love affair and get so bummed out that I'd just quit my job and become a bum for a few years, because I was thinking about doing that anyway.

If you go flying back through time and you see somebody else flying forward into the future, it's probably best to avoid eye contact.

It's easy to sit there and say you'd like to have more money. And I guess that's what I like about it. It's easy. Just sitting there, rocking back and forth, wanting that money.

I can picture in my mind a world without war, a world without hate. And I can picture us attacking that world, because they'd never expect it.

I hope some animal never bores a hole in my head and lays its eggs in my brain, because later you might think you're having a good idea but it's just eggs hatching.

During the Middle Ages, probably one of the biggest mistakes was not putting on your armor because you were "just going down to the corner."

Instead of a trap door, what about a trap window? The guy looks out it, and if he leans too far, he falls out. Wait. I guess that's like a regular window.

Here's a good thing to do if you go to a party and you don't know anybody: First take out the garbage. Then go around and collect any extra garbage that people might have, like a crumpled napkin, and take that out too. Pretty soon people will want to meet the busy garbage guy.

Sometimes I think you have to march right in and demand your rights, even if you don't know what your rights are, or who the person is you're talking to. Then on the way out, slam the door.

Má eiga það, fær mig til að brosa, veit ekki með aðra.

Íris í Handy fjöri



mánudagur, desember 06, 2004

Hey! Afmæliskveðjan til Hákonar og Britney datt út! Svindl.

...Big mouth strikes again... ætla að vera fámál út árið. Óska þess heitt og innilega að 2005 verði mitt ár, þ.e. ef ég lifi 2004 af. Spá í að pakka mér inní bómul og hanga þar fram til miðnættis á gamlárs. En ef ég skildi nú kafna í 100% cotton þá vil ég að jarðaförin mín verði grímupartý þar sem gin og tónik flytur um æðar þeirra sem hafa áhuga á að kveðja mig. Á þennan líka fína Línu langsokksbúning sem ég myndi gjarnan vilja vera grafin í, svo má grafa mig undir Hansen.
Þá lofa ég að vera góður Hansen draugur sem treður miðum í alla vasa.

Úff, grípur um mig þorsti, farin á Hansen.

Bling

sunnudagur, desember 05, 2004

Je minn, þetta var súrasta helgin til þessa held ég. Ætla ekki að gera henni sérstök eða ítarleg skil hér, þannig að þið verðið eigilega bara að trúa mér.

Fór í bíó með Elísu og Bobbu í gær, the grudge, þetta er bara viðbjóður, skil ekkert í sjálfri mér fyrir að hafa látið hafa mig útí þetta. Þegar við vorum á leiðinni í Álfabakkann þá fylltist ég alltaf meiri og meiri kvíða, og ég var orðin skíthrædd þegar við pöntuðum miðana. Ég vissi allan tíman að þetta var bara einhvern vegin rangasta ákvörðunin sem ég gæti tekið á þessum tímapunkti.
Ég er ennþá að jafna mig eftir Scream myndirnar síðan ég var 14 ára.
Lítil japönsk stelpa heyrir þrusk uppá háalofti og ákveður að kíkja upp með kveikjara af því það er ekkert ljós! Mig langaði að taka hana og berja hana all hressilega!
En ég get samt varla sagt að ég hafi séð þessa, því ég var með popppokann fyrir augunum allan tímann, meira svona hlustaði á herlegheitin, og það var alveg nóg.
Reyndi að hringja í Ásdísi í hléinu til að byðja hana um að sækja mig en hún svaraði ekki. Hvar varstu?
Gæran í sjoppunni laug að mér, ég spurði hvernig myndin endaði, hvort hún endaði ekki örugglega vel og maður fengi útskýringu á þessu öllu saman. Hún sagði að ég myndi skilja myndina betur eftir hlé. Liar! Ég skildi ekki neitt. Kanski er ég bara svona vitlaus, já ég skít á það, hún virkaði alveg klár þessi stelpa.
Og að sjálfsögðu hringdi ég í Marra og spurði hvort hann væri ekki örugglega á Hansen, mig vantaði bjór til að drepa niður hrollinn... heim að sofa, aldrei hægt.
Vilti helmingur Lufthansa skellti sér svo á tjúttið.

Var svo vakin með spurningunni:,,viltu hamborgara með beikoni?"
Já takk! Delissíus...

Hæ Valur!

Íris